Líffræðiráðstefnan verður haldin 12. – 14. október 2023 í Öskju og Íslenskri Erfðagreiningu

Ráðstefnan sem haldin er annað hvert ár spannar alla líffræði og veltur breiddin á framlagi þátttakenda.

Líffræðiráðstefnan er stærsti viðburður sinnar tegundar hérlendis og er hún nú haldin í 11. sinn  í Öskju – Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands og Íslenskri Erfðagreiningu.

Á ráðstefnunni koma saman flestallir vísindamenn á þessu sviði og fulltrúar nær allra stofnana og fyrirtækja sem tengjast lífvísindaheiminum á Íslandi. Ráðstefnan er eins og alltaf opin almennu áhugafólki um líffræði.


The IceBio2023 conference will be held October 12 – 14

The IceBio Conference on Biology is held every two years and covers research on all aspects of biology relevant to Iceland.
More information about the conference in English