Um Líffræðifélagið

Líffræðifélag Íslands var stofnað í Reykjavík árið 1979 í þeim tilgangi að “auka þekkingu á líffræði, auðvelda samband og skoðanaskipti milli félaga, og tengsl þeirra við erlenda aðila með svipuð áhugamál”, eins og segir í lögum félagsins. Þótt segja megi að internetið og tölvupóstur hafi nú gert síðarnefndu markmiðin að sínum, lifir félagið enn góðu lífi. Félagar eru nú um 400 talsins, langflestir líffræðimenntaðir, en félagið er þó opið öllum sem áhuga hafa á líffræði og skyldum greinum og vilja stuðla að framgangi þeirra. 

Tuttugu og þrjár ráðstefnur hafa verið haldnar frá stofnun félagsins og í tilefni 20 ára afmælis félagsins 1999 var haldin viðamikil ráðstefna. Var hún haldin 18.-20. nóvember í samvinnu við Líffræðistofnun HÍ og bar yfirskriftina “Líffræðirannsóknir á Íslandi”. Leikurinn var endurtekinn 2004 og 2009 undir sömu formerkjum. Frá árinu 2009 var ákveðið að Líffræðiráðstefnan væri haldin annað hvert ár og er hún uppistaðan í starfsemi félagsins. Líffræðingar eru alkunnt gleði- og skemmtanafólk mikið og því stendur félagið fyrir haustfagnaði á sama tíma og Líffræðiráðstefnan er.

Félagið er hlynnt virku lýðræði, frjálsu upplýsingaflæði, málfrelsi, o.s.frv. Hafir þú spurningar um félagið eða liggi þér eitthvað annað á hjarta skaltu endilega senda tölvu póst á stjórn í stjorn@biologia.is. Við erum líka  á Facebook.

Kennitala Líffræðifélagsins: 470983-0199
Tölvupóstfang stjórnar: stjorn@biologia.is

Stjórn (2023-)

Formaður: Kalina Kapralova
Gjaldkeri: Halldór Pálmar Halldórsson
Meðstjórnandi: Guðmundur Árni Þórisson
Meðstjórnandi: Ragnhildur Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Ásthildur Erlingsdóttir
Meðstjórnandi: Áki Jarl Láruson
Meðstjórnandi: Írena Pálsdóttir, fulltrúi líffræðinema við HÍ

Stjórn (2021-2023)

Formaður: Kalina Kapralova
Gjaldkeri: Guðmundur Árni Þórisson
Meðstjórnandi: Ragnhildur Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Ásthildur Erlingsdóttir
Meðstjórnandi: Helena Gylfadóttir, fulltrúi líffræðinema

Stjórn (2019-2021)

Formaður: Lísa Anne Libungan
Gjaldkeri: Sævar Ingþórsson
Vefstjóri: Guðmundur Árni Þórisson
Meðstjórnandi: Ragnhildur Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Arnór Bjarki Svarfdal

Stjórn (2018-2019)

Formaður: Lísa Anne Libungan
Gjaldkeri: Hlynur Bárðarson
Vefstjóri: Guðmundur Árni Þórisson
Meðstjórnandi: Ragnhildur Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Sævar Ingþórsson

Stjórn (2016-2018)

Formaður: Lísa Anne Libungan
Gjaldkeri: Hlynur Bárðarson
Vefstjóri: Guðmundur Árni Þórisson
Meðstjórnandi: Eva María Sigurbjörnsdóttir
Meðstjórnandi: Hrönn Egilsdóttir
Varamaður: Lovísa Ólöf Guðmundsdóttir

Stjórn (2013-2016) – Skýrsla stjórnar

Formaður: Arnar Pálsson
Gjaldkeri: Snorri Páll Davíðsson
Ritari: Guðmundur Árni Þórisson
Meðstjórnandi: Lovísa Ólöf Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Hrönn Egilsdóttir

Stjórn (2010-2012)

Formaður: Snæbjörn Pálsson
Meðstjórnandi: Bjarni Kr. Kristjánsson
Gjaldkeri: Snorri Páll Davíðsson
Ritari: Arnar Pálsson
Fulltrúi líffræðinema: Nóa Sólrún Guðjónsdóttir

Stjórn (2009-2010)

Formaður: Snæbjörn Pálsson
Meðstjórnandi: Bjarni Kr. Kristjánsson
Gjaldkeri: Snorri Páll Davíðsson
Ritari: Arnar Pálsson
Fulltrúi líffræðinema: Stefanía L. Stefánsdóttir
0
    0
    Karfan þín / Your Cart
    Karfan er tóm / Cart is emptyVerslun / Shop