Nýsköpun í náttúruvernd á stafrænni öld

Nýsköpun í náttúruvernd á stafrænni öld

Bill Adams, prófessor við Cambridgeháskóla, heldur erindi við HÍ 5. febrúar nk. Kl. 16:00 í stofu 132 í Öskju.

Dr. Adams rannsakar og skrifar um náttúruvernd og sjálfbæra þróun. Erindi hans fjallar um áhrif stafrænnar tækni á náttúruvernd. Hann spyr t.d.:

  • Breytir ný tækni því hvernig við hugsum um náttúruna?

  • Geta nýjungar í öflun og meðferð gagna bætt náttúruvernd og auðveldað ákvarðanatöku?

  • Mun ný samskiptatækni færa fólk nær náttúrunni og auka skilning á verndun hennar?

Ágrip af erindi hans:

Með tilkomu stafrænnar tækni opnast fjölmargir nýir möguleikar á sviði náttúruverndar. Tæknin breytir því hvernig gagna er aflað, einfaldar stjórnsýslu og auðveldar samskipti við almenna borgara. En gæti stafræn tækni breytt sjálfu inntaki náttúruverndar – því hvernig við hugsum um náttúruna og höfum samskipti við hana, eða haft áhrif á náttúruverndarpólitík? Hvaða þýðingu gæti hin áhrifamikla sýndarveruleikatækni haft á náttúruverndarmál, eða tilkoma nýrra kerfa fyrir öflun, geymslu, greiningu og framsetningu gagna? Og ef í ljós kemur að náttúruvernd tekur breytingum með stafrænni tækni, breytir það þá einhverju?

Um fyrirlesarann:

W.M. Adams er prófessor og forseti landfræðideildar Cambridgeháskóla í Bretlandi. Hann hefur lengi rannsakað náttúruverndarmál og sjálfbæra þróun, bæði í Afríku og Evrópu. Rannsóknir hans fjalla einkum um samþættingu samfélagsþróunar og náttúruverndar og árekstra þar á milli. Rannsóknir hans um þessar mundir snúast m.a. um stjórnmál og náttúruvernd, og um hlutverk myndlíkinga á borð við „þjónustu vistkerfa“ í stefnumótun um verndun náttúrunnar. Adams hefur skrifað fjölmargar bækur og greinar um þessi efni. Meðal bóka hans eru Future Nature (2003), Against Extinction (2004), Green Development (2009) og Trade-offs in Conservation (2010). Hann heldur einnig úti bloggsíðu um hugðarefni sín: http://thinkinglikeahuman.com/