Hvað er íslenskt vísindafólk að rannsaka? Hvernig verkefni styrkir Rannsóknasjóður? Hvernig skiptast styrkir úr sjóðnum?
Fimmtudaginn 12. mars kl. 14-17 verður opinn kynning á Rannsóknasjóði, úthlutun hans og fjölbreyttum verkefnum sem sjóðurinn styrkir. Kynningin verður haldin á Hótel Sögu, 2. hæð.
Markmið kynningarinnar er að kynna starfsemi sjóðsins og það fjölbreytta vísindastarf sem hann fjármagnar. Á dagskránni verða áhugaverð erindi og veggspjaldakynningar þar sem vísindamenn kynna rannsóknir sínar á öllum sviðum vísinda. Upplýsingar um Rannsóknasjóð hér. Eiríkur Stephensen hjá Rannís veitir allar upplýsingar um sjóðinn og kyninguna. Sími 515 5800, netfang eirikur.stephensen@rannis.is
Fundarstjóri verður Brynja Þorgeirsdóttir, fjölmiðlakona.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!
Dagskrá:
Kl. 14:00-15:30 Opnun og kynningar verkefna
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, opnar fundinn.
Guðrún Nordal, formaður stjórnar Rannsóknasjóðs flytur ávarp.
Verkefnakynningar (í stafrófsröð):
Forspárþættir heilsu og hegðunar meðal ungs fólks. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík.
Meðfædd bakteríudrepandi peptíð gegn sýkingum og ónæmum bakteríustofnum. Guðmundur H. Guðmundsson, prófessor við Háskóla Íslands.
Rannsókn á einhleypum konum í hópi vesturfara, 1870-1914. Sigríður Matthíasdóttir, fræðimaður við Reykjavíkurakademíuna.
Vöktun virkra jarðskjálftasprungna og kortlagning jarðskjálftaáhættu í þéttbýli. Benedikt Halldórsson, vísindamaður við Háskóla Íslands.
Þróun rafefnahvata fyrir vistvæna og sjálfbæra eldsneytis- og áburðarframleiðslu. Egill Skúlason, dósent við Háskóla Íslands.
15:30-17:00 Veggspjaldasýning
Kynnt verða 40 verkefni sem hlutu nýja styrki á árunum 2013 og 2014.
Í lok kynningar verður boðið upp á léttar veitingar.