Örnámskeið um kolefnisjöfnun

Örnámskeið um kolefnisjöfnun

Samlíf, samtök líffræðikennara, stendur fyrir örnámskeiði á Líffræðiráðstefnunni 2019. Þar verður Stefán Gíslason með erindið „Ekki er öll kolefnisjöfnun eins“ þar sem hann kynnir ólíkar aðferðir í kolefnisjöfnun og reikniaðferðir sem handhægar eru í kennslustofunni.

Stefán er líffræðingur með MSc-gráðu í umhverfisstjórnun frá Háskólanum í Lundi. Síðustu tvo áratugi hefur hann unnið við umhverfisráðgjöf undir merkjum eigin fyrirtækis, Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. (Environice), í Borgarnesi, m.a. við umhverfisfræðslu, áætlanagerð í úrgangsmálum og útreikning á kolefnisspori matvæla, fyrirtækja og landshluta