Laugardaginn 14. nóvember kl 14-16 munu Samtök um Krabbameinsrannsóknir á Íslandi, SKÍ, fagna 20 ára afmæli sínu með opnu húsi í Iðnó. Við bjóðum alla velkomna til að fræðast um krabbameinsrannsóknir og fagna með okkur. Dagskrá: Ávarp formanns SKÍ - Margrét Helga Ögmundsdóttir Örerindi kl. 14.15 - 15.15: Stofnun Samtaka um krabbameinsrannsóknir á Íslandi Helga M. Ögmundsdóttir - Prófessor við Læknadeild HÍ Hvað er Krabbameinsskráin og hvernig er hægt að nota hana? Laufey Tryggvadóttir - Framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Frá skarði í væng ávaxtaflugunnar til krabbameinslyfja Eiríkur Steingrímsson - Prófessor við Læknadeild HÍ Rannsóknir í krabbameinshjúkrun Sigríður Gunnarsdóttir - Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala Læknisfræðirannsóknir í krabbameinsfræðum Magnús Karl Magnússon - Forseti Læknadeildar HÍ Samtakamáttur Gunnhildur Óskarsdóttir - Formaður styrktarfélagsins Göngum saman Veggspjöld þar sem vísindamenn kynna rannsóknir sínar Kaffi og kökur í boði - Allir velkomnir! Stjórn SKÍ