Lúpínusláttur ber árangur

Af vef RÚV umfjöllun um tilraunir Róberts og Menju með lúpínuslátt, sem ber árangur.

———-

Niðurstöður mælinga í tilraunareitum staðfesta að árangur hefur náðst í útrýmingu á ágengum plöntutegundum í Stykkishólmi, þó mismikill eftir tegundum. Stykkishólmsbær, í samvinnu við Náttúrustofu Vesturlands, hefur undanfarin ár unnið að því útrýma ágengum plöntutegundum í bæjarlandinu, lúpínu, skógarkerfli, Spánarkerfili og risahvönn.

Mestur árangur hefur náðst gegn lúpínu, útbreiðsla hennar hefur dregist mikið saman og eru svæði sem áður voru þakin lúpínu á góðri leið með að breytast í graslendi. Þetta kom fram í erindi Róberts A. Stefánssonar, forstöðumanni Náttúrustofu Vesturlands á líffræðiráðstefnu Líffræðifélags Íslands í síðustu viku.