Nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði 2014: GPS-kerfi heilans
Fræðsluerindi á vegum Vísindafélags Íslendinga, Háskólans í Reykjavík og Lífvísindaseturs Háskóla Íslands
Karl Ægir Karlsson Dr. í taugavísindum
kynnir rannsóknir handahafa Nóbelsverðlauna í lífeðlis- og læknisfræði 2014
Dagsetning: Fimmtudagur, 23. okt. kl. 12:00
Staðsetning: Salur Þjóðminjasafns Íslands
Ágrip
Um aldir hafa verið uppi spurningar um hvernig dýr skynja og rata um umhverfið. Nú í ár deila John O´Keefe, Edvard og May-Britt Moser með sér Nóbelsverðlaunum fyrir uppgötvanir sem gerðu það kleift að svara þessum spurningum. O´Keefe fyrir uppgötvun á staðsetningarfrumum og Moser og Moser fyrir uppgötvun á hnitfrumum. Samvirkni þessara frumna skýrir hvernig umhverfið er táknað í heilanum. Í þessum fyrirlestri verður leitast við að gera grein fyrir bakgrunni þessara uppgötvana, skýra rannsóknaraðferðir og niðurstöður.
Um fyrirlesara
Karl Ægir Karlsson er doktor í taugavísindum og dósent við Tækni og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, hópstjóri í Lífvísindasetri Háskóla Íslands og Forseti Taugavísindafélags Íslands.
Fundarstjóri
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ónæmisfræðingur