Rannsóknaþing
Niðurstaða úttektar á íslensku rannsóknarumhverfi
föstudaginn 29. ágúst kl. 8:30-11:00 á Hilton Reykjavík Nordica, sal H
Hér er tilkynningin (sem að íslenskum sið barst tímanlega) um þingið. Ég hvet fólk til að mæta og taka þátt í umræðum.
————
Alþjóðlegir ráðgjafar hafa lagt jafningamat á stöðu vísinda, rannsókna og nýsköpunar á Íslandi. Á þinginu verður niðurstaða úttektarinnar til umfjöllunar og munu Francien Heijs og Arnold Verbeek fjalla um skýrsluna og í kjölfarið verða pallborðsumræður með þátttöku fundargesta. Húsið opnar kl. 8:15 með morgunverði fyrir gesti þingsins.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða afhent á þinginu.
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
Dagskrá
8:30 Opnunarávarp
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs
8:40 Úttekt á íslensku rannsóknarumhverfi
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
8:50 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Formaður dómnefndar gerir grein fyrir valinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir Hvatningarverðlaunin 2014
9:20 Kynning á niðurstöðum jafningjamats
Francien Heijs formaður jafningjahópsins og vísindaráðgjafi hollenska menntamálaráðuneytisins
Arnold Verbeek ráðgjafi hjá IDEA Consult
9:50 Viðbrögð frá íslensku vísindasamfélagi – pallborðsumræður
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri
Erna Magnúsdóttir rannsóknasérfræðingur á heilbrigðissviði Háskóla Íslands
Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir verkefnisstjóri framkvæmdastjórnar Marel um R&Þ
Árni Snorrason forstjóri Veðurstofu Íslands
Umræðustjóri: Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur
Morgunverður í boði fyrir gesti frá kl. 8:15