Leiðbeiningar til höfunda

 
Húsakynni

Ráðstefnan fer fram við Sturlugötu í Reykjavík. Setningin og yfirlitserindin fara fram í stóra sal Íslenskrar erfðagreiningar. Fyrirlestrar verða einnig í stofum 130, 131 og 132 í Öskju (náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands).

Skráning

Hægt er að skrá sig á netinu (til 8. nóvember) en senda þarf inn ágrip fyrir erindi eða veggspjald fyrir 10. október.

Skráningarsíða

Skráning á vettvangi, verður í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar frá kl 8:30 til kl 12:00 að morgni 8. nóvember. Frá 12:00 til loka ráðstefnunar verður skráningarborðið opið í Öskju, á jarðhæð.

Ráðstefnugjöld

Fullt ráðstefnugjald er 6.000 kr. en félagar í Líffræðifélagi Íslands greiða 4.000 kr. Nemar greiða 2.000 kr. en 1.000 kr. ef þeir eru félagar í Líffræðifélagi Íslands.

Hægt er að greiða inn á reikning Líffræðifélag Íslands, kt. 4709830199, tékkareikningur: 515-26-49867 og senda skilaboð á lif@gresjan.is. Þeir sem vilja að vinnuveitandi greiði ráðstefnugjöld eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá því fyrir ráðstefnuna.

Dagskrá

Listi yfir tímasetningu yfirlitserinda, málstofa og einstakra erinda verður send þátttakendum og set á vef líffræðifélagsins (biologia.is). Vinsamlegast beinið athugasemdum til skipuleggjenda. Dagskrá líffræðiráðstefnunar 2013 og listi er yfir veggspjöld

Veggspjöld

Veggspjöld verða standandi, stærst í A0 (hæðin mesta lagi 120 cm og breiddin í mesta lagi 90 cm).

Veggspjaldasýningin fer fram á jarðhæð Öskju og verður í tveimur hlutum föstudaginn 8. nóvember.

Veggspjöldin eru númeruð frá V1 upp í V80.  Veggspjöld númeruð með oddatölum á að kynna milli 17:00 og 18:30, en spjöld jöfnum tölum á milli 18:30 og 20:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki á meðan á sýningu stendur. Veggspjöldin verða til sýnis alla ráðstefnuna. Fólk er hvatt til að hengja spjöldin sín upp í byrjun ráðstefnunnar eða kvöldið 7. nóv. Standarnir verða settir upp 7. nóvember, og teknir niður eftir kl. 17:00 laugardaginn 9. nóvember.

Prentun veggspjalda

Veggspjaldssýning 17 – 20 föstudaginn 8. nóvember á jarðhæð Öskju

Háskólaprent býður félagsmönnum Líffræðifélagsins 20% afslátt af veggspjaldaprentun, óháð stærð. A0 prentun kostar fyrir afslátt 6900. Afgreiðslutími er 3-4 klukkustundir. Félagar þurfa að taka fram fyrir prentun að þeir eru í félaginu og minna á afsláttinn.

Háskólaprent, Fálkagötu 2, 107 Reykjavík s: 588 1162

Erindi

Athugið breytt fyrirkomulag. Fyrirlesarar hafa 14 mínútur til að kynna efni sitt og 4 mínútur fyrir umræður (ekki 15 og 5 eins og áður var auglýst). Fundarstjórar munu halda dagskránni í föstum skorðum, þannig að farsælast er að fólk virði tímamörkin. Fyrirlesarar eru beðnir um að koma rafrænum eintökum af slæðum sínum til fundastjóra seinasta lagi í hléinu fyrir viðkomandi málstofu.

Þeir sem eru með slæður úr machintosh vélum eru hvattir til að vista þær á formi sem er móttækilegt fyrir PC, t.d. pdf, eða að koma með mac vél og tengibúnað.

Ágrip

Ágrip af erindum og veggspjöldum verða á hér á vef líffræðifélagsins (tengill) og skráningarvefnum.

Kynningarbásar

Nokkur fyrirtæki munu kynna vörur sínar og þjónustu á ráðstefnunni. Ef þið hafið áhuga á að kynna vörur eða þjónustu, sendið þá tölvupóst á lif@gresjan.is.

Lokahóf
Haustfagnaður líffræðifélagsins verður að kvöldi 9. nóvember. Nánari upplýsingar síðar.
 
Fyrir spurningar og nánari upplýsingar
Sendið póst á lif@gresjan.is