Könnuðarstyrkir og Haustfagnaður / Explorer´s grants and Autumn Social event

Kæru félagar. Hér síðasti upplýsingapakkinn frá okkur í stjórninni fyrir sumarfrí.

Í fyrsta lagi, takið frá föstudagskvöldið 16. október því þá verður haldinn Haustfagnaður Líffræðifélagsins 2026. Í þetta sinn verðum við í Koníakssal Rauða Ljónsins við Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Að venju byrjum við á aðalfundi félagsins og förum síðan í skemmtidagskrá sem verður auglýst þegar nær dregur.

Í öðru lagi þá óskum við enn og aftur handhöfum Könnuðarstyrksins þetta árið innilega til hamingju! Dylan O’Hagan (til vinstri að neðan) mun leggja mat á fjölbreytni og algengi sníkjudýra í íslenskum dvergbleikjustofnum. Sigríður Vala Finnsdóttir (til hægri) hyggst rannsaka framandi hnífskeljategundina Ensis terranovensis. Við hlökkum til að heyra meira um verkefnin tvö á Líffræðiráðstefnunni 2027!
Meira hér: https://biologia.is/um-felagid/styrktarsjodur/verkefni/ 

Gleðilegt sumar, sjáumst hress aftur í haust!

—-
Stjórnin