Könnuðarstyrk Líffræðifélags Íslands og Les Amis de Jean-Baptiste Charcot úthlutað

Þann 15. maí sl. var Könnuðarstyrk Líffræðifélags Íslands og Les Amis de Jean-Baptiste Charcot úthlutað. Stjórninni bárust margar góðar umsóknir og þakkar öllum umsækjendum kærlega fyrir þátttökuna.

Að þessu sinni hlutu styrkinn þau Sigríður Vala Finnsdóttir fyrir verkefnið Samanburður á aldursgreiningaraðferðum og vexti framandi hnífskeljartegundar Ensis terranovensis, og Dylan O’Hagan fyrir verkefnið Fjölbreytni og algengi sníkjudýra í íslenskum dvergbleikjustofnum.

Sérstakt gleðiefni við afhendinguna var nærvera Anne Manipoud-Charcot, forseta Les Amis de Jean-Baptiste Charcot og langafabarn sjálfs Jean-Baptiste Charcot.

Líffræðifélag Íslands þakkar Les Amis de Jean-Baptiste Charcot fyrir gæfuríkt samstarf og óskum styrkþegunum til hamingju. Við hlökkum til að fylgjast með rannsóknum þeirra.