Rök lífsins, ný bók Guðmundar Eggertssonar – 17. maí útgáfuhóf

Í tilefni af útgáfu bókarinnar Rök lífsins eftir dr. Guðmund Eggertsson,
bjóða Líffræðifélag Íslands, Líffræðistofa Háskóla Íslands og Benedikt
bókaútgáfa til útgáfuhófs í Öskju, fimmtudaginn 17. maí klukkan 16.00 (á
svölum 3 hæðar).

Guðmundur mun kynna bók sína í nokkrum orðum og Ólafur Andrésson,
prófessor í erfðafræði segir nánar frá bókinni.

Á eftir verður boðið upp á léttar veitingar.

Verið hjartanlega velkomin að fagna með okkur útgáfu bókarinnar.

http://luvs.hi.is/frettir/2018_05_15/rok_lifsins_utgafuteiti_17_mai

Rök lífsins