Í hraunhellum við Mývatn finnast dvergbleikjur, sem virðast fjarskyldar þeim bleikjum sem finnast í vatninu sjálfu. Hellarnir eru margir mjög litlir og flestir töluvert einangraðir.
Bjarni K. Kristjánsson, Camille Leblanc, Skúli Skúlason og Árni Einarsson stunda rannsóknir á vistfræði og þróunarfræði þessara fiska, með merkingum, atferlisgreiningum, erfðafræði og líkanagerð.
Hópurinn leitar nú að nemendum í tvö spennandi verkefni. Verkefnið er í samstarfi við Háskólann í Guelp í Kanada.