Tilnefningar til heiðursverðlauna líffræðifélagsins

Dagana 5. – 7. nóvember 2015 verður haldin haustráðstefna líffræðifélagsins.

Árið 2011 var tekin upp sá siður félagsins að heiðra líffræðinga fyrir góða frammistöðu. Nú verða þau verðlaun veitt í þriðja skipti.

Við undirrituð höfum verið skipuð í valnefnd félagsins og óskum eftir tilnefningum frá félagsmönnum.

Veitt verða tvö verðlaun, annars vegar verðlaun vegna vel lukkaðs ferils í líffræði og hinsvegar verðlaun til ungs og upprennandi líffræðings sem sýnt hefur góðan árangur við upphaf ferils síns.

Bjarni K. Kristjánsson

Bergljót Magnadóttir

Þórður Óskarsson

Tilnefningar sendist á netfangið bjakk@holar.is