Kæru félagar.
Nú lifnar allt við hjá okkur eftir sumarfríið! Við höfum opnað fyrir innsendingu ágripa fyrir erindi og veggspjöld á Líffræðiráðstefnunni 2025. Frestur er til miðnættis 5. september. Vinsamlega fylgið leiðbeiningum á þessari síðu:
Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnuna um miðjan september eins og venjulega.
Við hvetjum fólk til að kynna líffræðirannsóknir sínar með erindum eða veggspjöldum. Eins og alltaf þá eru það framlög ykkar sem gera þessa mikilvægu ráðstefnu mögulega!
//
Abstract submission for IceBio2025 – Conference on Biology in Iceland – is now open. Deadline is midnight September 5th. Please follow instructions on this page to send in your abstract for a talk and/or poster,
The abstract, talk or posters can either be in Icelandic or English. Seminar sessions will be organized by topic and language. Contributions from you, the community, make this important conference possible!
Conference registration will open mid September as usual.
——-
Stjórnin og skipulagsnefnd