Líffræðiráðstefna 2025

Líffræðiráðstefnan 2025 – öndvegisfyrirlesarar, sérstakar málstofur og fleira / IceBio2023 – plenary speakers, special seminars and more

Kæru félagar

Þetta er síðasta skeyti frá okkur í stjórn fyrir sumarfrí, og það er aldeilis stútfullt af upplýsingum um ráðstefnuna í haust og fleira.


## Styrktarsjóðurinn – fyrsta úthlutun ## 

Níu umsóknir um Könnuðarstyrk Líffræðifélagsins bárust á vormánuðum. Tvö rannsóknarverkefni hljóta í ár hvort um sig styrk að upphæð 200.000kr:

–  Hrygningar- og uppeldisstöðvar bleikju í íslenskum ám: hvert á að fara þegar árnar hlýna? – Kenedy Annejulee Williams
Aðskiljun vista á milli tveggja samsvæða þrastartegunda, skógarþrösturinn og svartþrösturinn – Kristrún Thanyathon Rodpitak

Meira um verkefnin og styrkþegana má finna hér:   


## Líffræðiráðstefnan 2025 ## 

Hvenær? Ráðstefnan verður haldin 9. til 11. október og verður með svipuðu sniði og síðustu ár.

Hverjir? Ráðstefnan verður opnuð af Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, og staðfestir öndvegisfyrirlesarar eru:

– Johannes Krause, Max Planck Institute for Evolutionary Anthropology
– Ragnhildur Guðmundsdóttir, Náttúruminjasafni Íslands
– Sunnvör í Kongsstovu, Fróðskaparsetur Færeyja – Háskólinn í Færeyjum

Hvað er á dagskrá? Uppistaðan í ráðstefnunni, auk öndvegisfyrirlestra, er eins og alltaf málstofur með innsendum erindum frá _ykkur_  . Drjúgur hluti af dagskránni er einnig helgaður sérstökum verkefnum eða þemum. Við erum sérstaklega spennt yfir þessum málstofum:

Frá hugmynd til hagnýtingar – pallborð um grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir, nýsköpun og sprotar
– LIFE-ICEWATER – vinnustofa um ICEWATER sem er samstarfsverkefni yfir 20 aðila á Íslandi sem styður við og flýtir fyrir innleiðingu Vatnaáætlunar á Íslandi. Verkefnið fékk nýverið 3,5 milljarða styrk frá Evrópusambandinu.
– BIODICE workshop  – vinnustofa á vegum BIODICE, samstarfsverkefni um líffræðilega fjölbreytni.

Hvar er partí?!! Haustfagnaður félagsins verður haldinn í Ægi 220 í Hafnarfirði sem er steinsnar frá Hafró. Skemmtidagskrá er í smíðum, og heyrst hefur að Líffræðikórinn muni mæta í ár!  Stuðpinnarnir í BOY munu sjá um að keyra upp stuðið.


Allar upplýsingar um ráðstefnuna verða aðgengilegar hér á vef  félagsins https://biologia.is 


Hafið það gott í sumar!
// 

Dear comrades

Here´s the last announcement from us before the summer vacation.

 

## Explorer’s Grant – first allocation round  ##

The Society received a total of nine grant applications this spring.  Two research projects each received a grant of ISK 200,000:

Spawning and nursery grounds of Arctic charr in Icelandic rivers: where to go when rivers warm? –  Kenedy Annejulee Williams
and
Habitat segregation between two co-occurring thrush species, the Redwing and the Common Blackbird – Kristrún Thanyathon Rodpitak

More information on both projects can be found here.

##  IceBio2025 conference ##

When? The conference will be held October 9 – 11 in the same location and same format as previous years.

Who? The conference will be opened by Jóhann Páll Jóhannsson, Minister of the Environment, Energy and Climate. Confirmed invited plenary speakers are:

– Johannes Krause, Max Planck Institute for Evolutionary Anthropology
– Ragnhildur Guðmundsdóttir, Icelandic Museum of Natural History
– Sunnvör í Kongsstovu, Fróðskaparsetur Færeyja -The University of the Faroe Islands

What´s on? Besides invited plenary talks, the bulk of the  conference programme comprises submitted research talks and posters from __you__. But special projects, themes and short courses also feature heavily. We are particularly excited about these special seminars:

From idea to application – round table discussion on basic research, applied research, innovation and startups
– LIFE ICEWATER
– BIODICE 

Where’s the party!!? The Society annual Autumn social event will be held in í Ægir 220 in Hafnarfjörður  within short walking distance from Hafró. The cool guys in BOY wedding band will take care of the music this year.

 

Have a good summer!


Stjórnin og skipulagsnefnd