Líffræðiráðstefnan 2023 – Dagsetningar / IceBio2023 – Dates

[in English below]

Kæru félagar.

Árið 2023 er oddatala, sem þýðir AÐEINS EITT: að Líffræðiráðstefnan verður haldin í ár.

Ráðstefnan verður haldin að venju á haustmánuðum, nánar tiltekið 12. – 14. október. Takið frá þessa daga!

Sniðið verður svipað og síðustu ár. Byrjað verður á fimmtudeginum með opnun ráðstefnunnar og endað á laugardagskvöldinu með hinum goðsagnakennda Haustfagnaði Líffræðifélagsins. Dagskráin mun, eins og ávallt, samanstanda að langmestu leyti af framlögum frá YKKUR, bæði erindum og veggspjöldum.

Við munum eins og alltaf senda út frekari upplýsingar um dagskrá og kalla eftir innsendum ágripum o.s.fr. þegar líður á vorið.

Stjórn Líffræðifélagsins og skipulagsnefnd 2023

//

Dear comrades.

2023 is a conference year for biology in Iceland. The biennial Conference on Biology in Iceland will be held October 12th to 14th. So save those dates!

The format will be similar to previous IceBio conferences organized by the Icelandic Biological Society. The event will start with the conference opening on the Thursday and ends as usual on Saturday evening with the legendary Society autumn bash / social event. The program, as always, will consist almost entirely of material contributed by YOU, the community, both oral and poster presentations.

We will as usual send out further information about the conference and calls for abstract submissions later in the spring.


The Society Board and 2023 Organizing Committee