„Nýju náttúruverndarlögin“ Aagot Vigdís Óskarsdóttir flytur erindi á vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Erindið verður flutt mánudaginn 25. janúar kl. 17:15 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Ágrip af erindi: „Ný náttúruverndarlög tóku gildi 15. nóvember sl. Um frumvarpið, sem samþykkt var á Alþingi í mars 2013, sköpuðust miklar deilur og varð úr að gildistöku laganna var frestað í tvígang svo jafna mætti ágreining. Lyktir málsins urðu að Alþingi samþykkti talsverðar breytingar á lögunum nokkrum dögum fyrir gildistöku þeirra nú í haust. Með nýju náttúruverndarlögunum er leitast við að finna nýjum aðferðum leið inn í íslenska löggjöf í því skyni að tryggja betri árangur í náttúruvernd og uppfylla um leið þær skyldur sem Ísland hefur gengist undir með aðild að ýmsum alþjóðasamningum. Sem dæmi má nefna það vinnulag samningsins um líffræðilega fjölbreytni sem kennt hefur verið við vistkerfisnálgun. Hún gerir kröfu til þess að fylgst sé með lykilþáttum vistkerfisins og að brugðist sé án tafar við breytingum á þeim. Þetta felur í sér að leggja þarf rækt við rannsóknir, sem og skráningu og flokkun lífríkisins, gera áætlanir um skipulega vernd þess og koma á árangursríkri vöktun lykilþátta lífríkisins. Í lögunum eru m.a. sett fram ítarleg markmiðsákvæði, þar á meðal sérstök verndarmarkmið, annars vegar fyrir vistgerðir, vistkerfi og tegundir og hins vegar fyrir jarðminjar, vatnasvæði, landslag og víðerni. Lögin hafa einnig að geyma nokkrar meginreglur sem leggja ber til grundvallar við framkvæmd laganna í heild og byggja sumar þeirra á helstu meginreglum umhverfisréttar. Í erindinu verður farið yfir helstu atriði nýju laganna og þær breytingar sem í þeim felast. Jafnframt verður gerð grein fyrir helstu ágreiningsefnum og breytingum sem gerðar voru á lögunum nú á haustdögum“ Aagot Vigdís Óskarsdóttir er lögfræðingur. Hún vann að undirbúningi náttúruverndarlaganna og var m.a. ritstjóri hvítbókar um löggjöf til verndar náttúru Íslands sem gefin var út árið 2011 til undirbúnings nýrrar löggjafar. Aagot Vigdís hefur einkum lagt stund á auðlindarétt og eignarrétt og starfað á ýmsum vettvangi, m.a. við háskólakennslu og löggjafarsmíði.. Sjá nánar á vef HÍN (http://www.hin.is/)