Náttúrupælingar Páls Skúlasonar

Út er komin ný bók eftir Pál Skúlason, Náttúrupælingar.

Á síðustu áratugum hefur Páll Skúlason unnið brautryðjendastarf í skipulegri hugsun um náttúruna. Í þeim greinum og erindum sem hér birtast veitir hann nýja sýn á samband manns og náttúru og skýrir á frumlegan hátt hugmyndir og hugtök sem við þurfum til að skilja reynslu okkar og stöðu í tilverunni. Hann íhugar þýðingu þess að tengjast landinu og ræðir um þau gæði og gildi sem eru í húfi í samskiptum okkar við náttúruna og ábyrgð okkar gagnvart henni.

Páll Skúlason er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi frá Kaþólska háskólanum í Louvain árið 1973. Páll var rektor Háskóla Íslands 1997–2005.

Í tilefni af útgáfunni verður haldið útgáfuboð í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18 fimmtudaginn 2. október kl 17. Allir velkomnir.