Líffræðiráðstefnan 2011

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 – viðurkenningar

Á ráðstefnu Líffræðifélags Íslands sem haldin var 11.- 12. nóvember veitti Líffræðifélag Íslands tveimur íslenskum vísindamönnum heiðursverðlaun. Halldór Þormar fær viðurkenningu fyrir farsælan feril og Bjarni K. Kristjánsson viðurkenningu fyrir góðan árangur ungs vísindamanns.

Ljósmynd. Halldór Þormar (t.v.) og Bjarni K. Kristjánsson (t.h). Mynd Arnar Pálsson, copyright.

Halldór Þormar veirufræðingur og prófessor emeritus við líf og umhverfisverðlaunadeild Háskóla Íslands hlaut viðurkenningu fyrir farsælan feril á sviði líffræðirannsókna. Halldór stundaði góðar rannsóknir á mæði-visnuveirunni eftir að Björn Sigurðsson réð hann til Tilraunastöðvar Háskólans að Keldum árið 1957. Þá höfðu mæði og visna herjað á íslenskt sauðfé, og Björn sett fram þá tilgátu að orsakirnar væru hæggengar veirur. Halldór lýsti, í erindi sem hann hélt á líffræðiráðstefnunni 11. nóvember 2011, rannsóknum sem sýndu að visna væri vegna veirusmits. Í nákvæmum tilraunum smitaði hann kindafrumur í rækt með síuðu floti úr heilum sýktra kinda. Veiruagnir voru einangraðar úr ræktinni og sýnt fram á að þær dugðu til að smita kindurnar aftur af visnu. Halldór rifjaði upp þessar tímamótarannsóknir af kímni og hógværð – “hver sem er gat gert þetta” var viðkvæðið. Stjórn Líffræðifélagsins ályktaði hins vegar að ævistarf Halldórs væri veigameira en flestra og hann hlaut því viðurkenningu fyrir farsælan feril á sviði líffræðirannsókna.

Rannsóknir sýndu síðar að mæði og visna eru náskyldar veirur, og þær voru fyrstu fulltrúar hóps veira sem kallaðar eru lentiveirur. Þekktasta veiran í ættkvíslinni er eyðniveiran (e. Human Immuno Deficiency Virus ) eða HIV-veiran sem uppgötvaðist fyrst í byrjun níunda áratugarins. Nú eru miklar rannsóknir stundaðar á mæði-visnu veirunni á Keldum þar sem hún nýtist til að skilja líffræði HIV og alnæmis. Halldór Þormar lauk mag. scient. prófi í frumulíffræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1956. Hann stundaði framhaldsnám í veirufræði við Kaliforníuháskóla í Berkeley 1957-1958 og á þeim árum stundaði hann rannsóknir við Tilraunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum, 1957-1960 og síðan aftur 1962-1967. Hann hlaut doktorspróf í veirufræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1966. Halldór stundaði um árabil rannsóknir í New York, en sumpart er ferill hans áþekkur ferli heimshornaflakkarans og teiknimyndahetjunnar Tinna. Halldór hefur nefnilega einnig starfað við Cambridge-háskóla og háskóla og stofnanir í Belgíu, Venezúela, Kína og Danmörku. Árið 1986 var hann ráðinn prófessor í frumulíffræði við líffræðiskor Háskóla Íslands, kenndi þar við góðan orðstír og stundaði vandaðar rannsóknir. Síðustu áratugi hefur Halldór kannað áhrif fitu og sápuefna á veirur og aðra sýkla, sem er sérstaklega mikilvægt viðfangsefni nú þegar mannkynið hefur ofnotað hin klassísku sýklalyf. Halldór ritstýrði bók um þetta fræðasvið, sem kom út hjá hinu virta forlagi Wiley í ársbyrjun 2011.

Stjórn líffræðifélagsins ákvað einnig að heiðra líffræðing sem lokið hefur doktorsprófi á síðustu 5 árum, og þykir hafa byrjað rannsóknaferil af miklum krafti. Bjarni K. Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum hlaut verðlaunin, því hann hefur gert mjög snjallar rannsóknir á sviði vistfræði og þróunarfræði og birt um þær 22 greinar á stuttum ferli. Ein vísbending um dugnað hans er að nú í ár var hann 39 ára gamall skipaður prófessor við Háskólann á Hólum.

Bjarni er útskrifaður Flensborgari og lauk BS-prófi 1994 og fjórðaársverkefni 1997 frá líffræðiskor HÍ. Hann hóf meistaranám við Guelph-háskóla í Kanada undir leiðsögn David Noakes og Skúla Skúlasonar við Hólaskóla. Meistaraprófi lauk hann 2001 og doktorsprófi frá Guelph háskóla 2008. Bjarni hefur stundað rannsónir á fiskum; hrognkelsum, hornsílum og bleikjum eða á matnum sem fiskarnir borða. Bjarni hefur líka gert sér mat úr mat fiskanna, ekki síst með rannsóknum á áður óþekktum grunnvatnsmarflóm. Um að ræða tvær áður óþekktar tegundir, sem hafa þróast í íslensku grunnvatni í milljónir ára og lifað af margar ísaldir. Þessar tegundir geta veitt okkur ómetanlegar upplýsingar um uppruna og þróun lífs á Íslandi og ekki síður uppruna landsins þar sem tilvist þeirra er talin tengjast landreki. Rannsóknirnar voru unnar í samstarfi við Jörund Svavarsson, Snæbjörn Pálsson og Etienne Kornobis við Háskóla Íslands.

Um 250 manns sóttu líffræðiráðstefnuna 2011 þar sem flutt voru 84 erindi og 77 veggspjöld kynnt. Ágrip erinda og veggspjalda má lesa á vefsíðu ráðstefnunar (lif.gresjan.is/2011).

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 – dagskrá er tilbúin

Yfirlit dagskrár, nöfn flytjenda erinda eftir málstofum má sjá í STYTTRI Dagskrá. FULL Dagskrá erinda, með titilum og höfundalista er einnig aðgengileg (hvorutveggja á pdf formi).

Eftirtaldar málstofur verða á ráðstefnunni:

  • Fuglar
  • Rjúpur
  • Sjávarvistfræði
  • Sjúkdómar
  • Fiskisjúkdómar
  • Sameindalíffræði
  • Lífeðlisfræði og frumulíffræði
  • Hvalir og fiðrildi
  • Plöntur og vistfræði
  • Skóg og vatnalíffræði
  • Hestasjúkdómar
  • Ferskvatnsfiskar
  • Þróunarfræði
  • Bleikjuerfðafræði

Ráðstefnan stendur frá kl 9:00 þann 11. nóvember til 17:00 þann 12. nóvember.

Við bendum sérstaklega á þrjú yfirlitserindi sem flutt verða að morgni þess 11. nóvember í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar.

  • 9:15 Kári Stefánsson forstjóri decode: Genetics of complex human traits
  • 10:30 Halldór Þormar: Rannsóknir á mæði-visnuveiru og skyldleika hennar við aðrar dýraveirur
  • 11:10 Bjarni K. Kristjánsson: Tengsl vistfræði við fjölbreytileika fiska

Nánari upplýsingar um titla og nöfn allra höfunda má finna á vefsíðu ráðstefnunar (http://lif.gresjan.is/2011/). Höfundum veggspjalda og erinda er einnig bent á leiðbeiningar hér að neðan.

Haustfagnaður líffræðifélagsins

Laugardagskvöldið 12. nóvember mun Haustfagnaður Líffræðifélagsins slá botninn í ráðstefnu félagsins þetta árið. Fagnaðurinn verður í Gyllta salnum á Hótel Borg og opnar húsið klukkan 20:00.

Boðið verður uppá pinnamat og hin víðfræga Haxabolla verður á svæðinu. Létt ræðuhöld og jafnvel einhver skemmtiatriði. Stuðkapparnir í Geirfuglunum leika fyrir dansi fram á rauða nótt.

Það kostar litlar 1000 krónur að taka þátt í gleðinni þetta árið. Miðasala verður á ráðstefnunni en einnig verður hægt að kaupa miða við dyrnar. Við hvetjum þó fólk til að tryggja sér miða sem fyrst enda er þessi fögnuður nokkuð sem enginn líffræðingur ætti að missa af.

Skemmtinefnd Líffræðifélagsins.

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 – dagskrá er tilbúin

Eftir óþarfa tafir er dagskrá líffræðiráðstefnunar 2011 tilbúin. Dagskrá má skoða í heild sinni (pdf). Ráðstefnan stendur frá kl 9:00 þann 11. nóvember til 17:00 þann 12. nóvember.

Við bendum sérstaklega á þrjú yfirlitserindi sem flutt verða að morgni þess 11. nóvember í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar.

  • 9:15     Kári Stefánsson forstjóri decode: Genetics of complex human traits
  • 10:30   Halldór Þormar: Rannsóknir á mæði-visnuveiru og skyldleika hennar við aðrar dýraveirur
  • 11:10    Bjarni K. Kristjánsson: Tengsl vistfræði við fjölbreytileika fiska

Nánari upplýsingar um titla og nöfn allra höfunda má finna á vefsíðu ráðstefnunar (http://lif.gresjan.is/2011/). Höfundum veggspjalda og erinda er einnig bent á leiðbeiningar (hér að neðan).

Aðrir gestir eru hjartanlega velkomnir. Af gefinni ástæðu viljum við árétta að ekki er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram, það dugir að mæta og skrá sig.

Vegna anna mælum við með að fólk greiði ráðstefnugjaldið rafrænt og sæki síðan nafnspjald og útprentaða dagskrá við lendingu.

Fullt ráðstefnugjald er 6.000 kr. en félagar í Líffræðifélagi Íslands greiða 4.000 kr. Nemar greiða 2.000 kr. en 1.000 kr. ef þeir eru félagar í Líffræðifélagi Íslands.

Hægt er að greiða inn á reikning Líffræðifélag Íslands, kt. 4709830199, tékkareikningur: 515-26-49867 og senda skilaboð á lif@gresjan.is.

Í ráðstefnugjaldi er innifalinn aðgangur að ráðstefnunni, kaffi og með því. Hádegisverður er ekki innifalinn en þátttakendum er bent á að taka með sér slátur eða veiða sér til matar í Vatnsmýrinni (í Norræna húsinu, Hámu …).

Leiðbeiningar til höfunda

Húsakynni

Ráðstefnan fer fram í þremur húsum við Sturlugötuna. Setningin og yfirlitserindin fara fram í stóra sal Íslenskrar erfðagreiningar. Fyrirlestrar verða einnig í stofum 130, 131 og 132 í Öskju (náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands).

Skráning

Verður í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar frá kl 8:30 til kl 12:00 að morgni 11. nóvember. Frá 12:00 til loka ráðstefnunar verður skráningarborðið opið í Öskju, á jarðhæð.

Ráðstefnugjöld

Fullt ráðstefnugjald er 6.000 kr. en félagar í Líffræðifélagi Íslands greiða 4.000 kr. Nemar greiða 2.000 kr. en 1.000 kr. ef þeir eru félagar í Líffræðifélagi Íslands.

Hægt er að greiða inn á reikning Líffræðifélag Íslands, kt. 4709830199, tékkareikningur: 515-26-49867 og senda skilaboð á lif@gresjan.is. Þeir sem vilja að vinnuveitandi greiði ráðstefnugjöld eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá því fyrir ráðstefnuna.

Dagskrá

Listi yfir tímasetningu yfirlitserinda, málstofa og einstakra erinda verður set á vef líffræðifélagsins (). Vinsamlegast beinið athugasemdum til skipuleggjenda.

Veggspjöld

Veggspjöld eiga að vera í stærðinna A0, standandi (hæðin mesta lagi 120 cm og breiddin í mesta lagi 90 cm). Veggspjaldasýningin fer fram á jarðhæð Öskju og verður milli kl 17:00 og 20:00 föstudaginn 11. nóvember.

Veggspjöldin eru númeruð frá V1 upp í V100 – röðin verður birt hér. Veggspjöld númeruð með oddatölum á að kynna milli 17:00 og 18:30, en spjöld jöfnum tölum á milli 18:30 og 20:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki á meðan á sýningu stendur. Veggspjöldin verða til sýnis alla ráðstefnuna. Fólk er hvatt til að hengja spjöldin sín í byrjun ráðstefnunnar eða kvöldið 10. nóv. Standarnir verða settir upp 10. nóvember.

Prentun veggspjalda

Við fengum tilboð frá Sýningarkerfi ehf.

5900 ISK óplastað veggspjald í A0.

7900 ISK plastað veggspjald í A0.

Sóltúni 20 – 105 Reykjavík

Sími: +354 551 9977, Fax:551 9927Netfang: syning@syning.is

Erindi

Fyrirlesarar hafa 15 mínútur til að kynna efni sitt og 5 mínútur fyrir umræður. Fundarstjórar munu halda dagskránni í föstum skorðum, þannig að farsælast er að fólk virði tímamörkin. Fyrirlesarar eru beðnir um að koma rafrænum eintökum af slæðum sínum til fundastjóra seinasta lagi í hléinu fyrir viðkomandi málstofu.

Þeir sem eru með slæður úr machintosh vélum eru hvattir til að vista þær á formi sem er móttækilegt fyrir PC, t.d. pdf, eða að koma með mac vél og tengibúnað.

Ágrip

Ágrip af erindum og veggspjöldum verða á vef líffræðifélagsins (biologia.hi.is) og skráningarvefnum (http://lif.gresjan.is/2011/).

Kynningarbásar

Nokkur fyrirtæki munu kynna vörur sínar og þjónustu á ráðstefnunni.

Lokahóf
Haustfagnaður líffræðifélagsins verður í gyllta sal Hótel Borgar og hefst kl 21:00 að kvöldi 12. nóvember.
 
Fyrir spurningar og nánari upplýsingar
Sendið póst á lif@gresjan.is

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 – tilnefningar til verðlauna

Ráðstefnan hefst kl 9, föstudaginn 11. nóv. í sal Íslenskrar erfðagreiningar. Frá kl 9-12 á föstudeginum verða þrír lengri fyrirlestrar. Einn boðsfyrirlestur og tveir fyrirlestrar heiðursgesta.

Annar gesturinn er heiðraður fyrir farsælan feril og hinn fyrir árangursríka byrun á ferli sínum. Þrátt fyrir stuttan fyrirvara, óskum við eftir tilnefningum um þann síðarnefnda. Sendið vinsamlegast póst með nafni og nokkura setninga rökstuðningi á lif@gresjan.is

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 11. og 12. nóvember – skráningarfrestur útrunninn

Skráningarfrestur þeirra sem vilja halda erindi eða vera með veggspjöld á ráðstefnunni er útrunninn.

Dagskrá er í vinnslu, en samþykkt framlög má skoða á skráningar vefsíðunni (http://lif.gresjan.is/2011/).

Nú þegar hafa eftirtaldir aðillar styrkt líffræðiráðstefnuna 2011:

 

Gróco ehf

 

Orf líftækni

Náttúrustofa Kópavogs

Nýsköpunarmiðstöð

Veiðimálastofnun

Íslensk erfðagreining

Líf og umhverfisvísindadeild

Háskóla Íslands

Samtök líffræðikennara

Landsvirkjun

Mennta og menningarmálaráðaneytið

Náttúrustofa vesturlands

 

Hið íslenska bókmenntafélag

Ormstunga

   

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 11. og 12. nóvember- skráningarfrestur framlengdur til 8. október.

Skráningarfrestur þeirra sem vilja halda erindi eða vera með veggspjöld á ráðstefnunni var framlengdur til 8. október.

Vinsamlegast skráið þátttöku og útdrátt á síðunni http://lif.gresjan.is/2011/skraning.php.

Vinsamlegast takið fram við skráningu hvort þið óskið eftir því að vera með veggspjald eða erindi. Útdrættir, erindi og veggspjöld skulu vera á íslensku eða ensku, en við hvetjum þátttakendur til að kynna efni sitt á íslensku sé þess auðið. Lengd útdrátta skal ekki vera lengri en 1500 slög.

Strangt til tekið þurfa aðrar gestir ekki að skrá sig, það er hægt að borga skrásetningargjöld og skrá sig á ráðstefnu degi. En það hjálpar okkur við skipulagningu ef sem flestir senda inn skráningu fyrir ráðstefnuna.

Líffræðirannsóknir á Íslandi 2011 11. og 12. nóvember

Líffræðifélag Íslands heldur ráðstefnu dagana 11. og 12. nóvember 2011. Við hvetjum alla til að nýta tækifærið til að kynna líffræðirannsóknir sínar með erindum eða veggspjöldum.

Conference on biological research in Iceland – English summary below.

Ráðstefnunni verður skipt upp í málstofur eftir viðfangsefnum, ekki verða fleiri en ‏‏þrjár málstofur samhliða. Ef áhugi er á sérstökum málstofum, komið þá hugmyndum til skipuleggjenda ráðstefnunnar eigi síðar en 10. september. Stefnt er að því að hver málstofa hefjist á 30 mínútna inngangserindi, en hvert erindi er síðan 15 mínútur. Ef of margar beiðnir um erindi berast, getur þurft að bjóða sumum þáttakendum að senda inn veggspjald í staðinn.

Skráningarfrestur á ráðstefnuna er 1. október.

Vinsamlegast skráið þátttöku og útdrátt á síðunni http://lif.gresjan.is/2011/skraning.php. Vinsamlegast takið fram við skráningu hvort þið óskið eftir því að vera með veggspjald eða erindi. Útdrættir, erindi og veggspjöld skulu vera á íslensku eða ensku, en við hvetjum þátttakendur til að kynna efni sitt á íslensku sé þess auðið. Lengd útdrátta skal ekki vera lengri en 1500 slög.

Vinsamlegast hlaðið niður auglýsingum fyrir ráðstefnuna og hengið upp á vinnustað ykkar.

Að lokinni ráðstefnunni, laugardagskvöldið 12. nóvember, verður haldinn haustfagnaður félagsins. Staðsetning og nánari uppýsingar verða gefnar síðar.

Undirbúningsnefndin/stjórn líffræðifélagsins:

Snæbjörn Pálsson (snaebj@hi.is) Snorri Páll Davíðsson (spd@gresjan.is) Lovísa Ólöf Guðmundsdóttir (log3@hi.is) Bjarni K. Kristjánsson (bjakk@holar.is) Arnar Pálsson (apalsson@hi.is)