7. mars 2014, heiðursverðlaun og fyrirlestur um stofnfrumurannsóknir

Líffræðifélag Íslands og Líffræðistofa HÍ stendur fyrir málstofu á sviði sameindalíffræði 7. mars 2014.

Á líffræðiráðstefnunni sem haldin var 8. og 9. nóvember síðastliðin, voru afhent tvennskonar viðurkenningar. (Líffræðirannsóknir á Íslandi 2013 – viðurkenningar) Bergljót Magnadóttir fékk viðurkenningu fyrir farsælan feril, og Þórður Óskarsson viðurkenningu fyrir góðan árangur ungs vísindamanns.

Þórður gat ekki veitt viðurkenningunni móttöku, þar sem hann starfar erlendis. Þórður Óskarsson stýrir rannsóknarhóp við Heidelberg institute for stem cell technology and experimental medicine í Þýskalandi. Þórður útskrifaðist með BS gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands 1998. Eftir útskrift hóf hann meistarnám í veirufræði undir leiðsögn Valgerðar Andrésdóttur á Keldum. Þórður lauk doktorsprófi árið 2005 frá Swiss Institute for Experimental Cancer Research (ISREC) undir leiðsögn Dr. Andreas Trump, þar sem hann rannsakaði umritunarþætti í frumum í tengslum við krabbamein. Eftir doktorsnám flutti Þórður til Bandaríkjanna þar sem að hann vann sem nýdoktor undir leiðsögn Dr. Joan Massague at the Memorial Sloan-Kettering Cancer Center (MSKCC) in New York. Þar vann hann að rannsóknum á eðli illkynja krabbameina. Haustið 2011 hóf Þórður núverandi starf. Þórður hefur birt fjölmargar greinar um rannsóknir sínar í virtustu vísindatímaritum á sínu sviði þ.m.t. Nature.

7. mars næstkomandi mun Þórður halda erindi á stuttri málstofu um sameindalíffræði, sem félagið heldur í samstarfi við Líffræðistofu HÍ. Erindið mun fjalla um rannsóknir Þórðar á stofnfrumum – og verður flutt á ensku (Extracellular matrix proteins of stem cell niches promote breast cancer metastasis). Valgerður Andrésdóttir sérfræðingur á Keldum mun kynna Þórð, og einnig flytja Sigríður Rut Franzdóttir, Guðrún Valdimarsdóttir og Ólafur E. Sigurjónsson tvö styttri erindi um skyld viðfangsefni. Erindi Sigríðar heitir Molecular genetics of Arctic charr development og Ólafs heitir Útrunnin og örveruóvirkjuð blóflöguþykkni til fjölgunar  og sérhæfingar á beinmyndandi stofnfrumum (Expired and pathogen inactivated platelet concentrates for expansion and differentiation of bone forming stem cells).

Dagskrá og staðsetning verða auglýst síðar. Aðgangur verður ókeypis.

Mynd af vef Þórðar við Háskólann í Heidelberg.