Líffræðifélag Íslands - biologia.is
Líffræðiráðstefnan 2021

Erindi/veggspjald / Talk/poster V4

Hversu sýnilegt er “Icelandic Agricultural Sciences” í alþjóðlegum vefsetrum?

Höfundar / Authors: Sigurður Ingvarsson (1), Bjarni Diðrik Sigurðsson (2), Björn Þorsteinsson (2)

Starfsvettvangur / Affiliations: 1. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, 2. Landbúnaðarháskóli Íslands

Kynnir / Presenter: Sigurður Ingvarsson

Alþjóðlega vísindaritið Icelandic Agricultural Sciences (IAS; www.ias.is) birtir ritrýndar vísindagreinar á ensku um hagnýt náttúrufræði, umhverfisfræði og nýtingu auðlinda. Tímaritið er í opnum rafrænum aðgangi og er eitt af þremur íslenskum ISI vísindaritum. Greinar í IAS koma fram í ýmsum alþjóðlegum vefsetrum. Leit var framkvæmd í vefsetrum Web of Science og Scopus þann 17. september 2019 til að kanna hversu sýnilegt IAS er. Alls voru 93 IAS greinar (2009-2021) í Clarivate Analytics gagnagrunni og 86 (2010-2020) í Scopus gagnagrunni. Vitnað hefur verið í þessar 93 og 86 greinar 543 og 471 sinnum, að meðaltali 5,8 og 5,5 tilvitnanir í hverja grein. Matsstuðlar eru nú 1,03 (fimm ára Impact Factor) og 1,00 (Cite Score). SJR (SCImago Journal Rank) er 0,19 og SNIP (Source Normalized Impact per Paper) er 0,47. Hirsch-index mælist 12. Sú grein sem oftast var vitnað í fjallar um öskufall og áfok. Web of Science vefsetrið flokkar greinarnar sem vitna í IAS í 57 fræðasvið og Scopus vefsetrið í 24 fræðasvið. Höfundar að greinunum í IAS eru frá 90 stofnunum og háskólum víðs vegar í heiminum, í fimm heimsálfum og 24 löndum. Vefsetursgreiningin á IAS endurspeglar árangursríkt gæðastarf tímaritsins, fjölbreytt fræðasvið hagnýtra náttúrufræða og gefandi alþjóðlegt samstarf. Árangur útgáfustarfsins er góður og IAS er vel sýnilegt meðal vísindarita sem það er sett í flokk með.