Líffræðifélag Íslands - biologia.is
Líffræðiráðstefnan 2021

Erindi/veggspjald / Talk/poster E9

Hlustað á humra

Höfundar / Authors: Jónas Páll Jónasson

Starfsvettvangur / Affiliations: Hafrannsóknastofnun

Kynnir / Presenter: Jónas Páll Jónasson

Leturhumar (Nephrops norvegicus) er mikilvæg nytjategund í hlýsjónum við Ísland. Humarinn dvelur í holum á leirbotni sem hann grefur og viðheldur. Hann er einungis veiðanlegur þegar hann yfirgefur holuna en aflabrögð geta verið mjög sveiflukennd. Hingað til hafa upplýsingar um virkni dýranna einkum byggst á upplýsingum frá veiðum og tilraunum við eldisaðstæður. Atferli leturhumars var kannað haustið 2020 á tveimur svæðum í Jökuldjúpi, á 115 m og 195 m dýpi. Á hvorri slóðinni voru merktir 16 humrar með smáum hljóðmerkjum, límd á bakskjöld dýranna. Á hvoru svæði var sett niður net níu hlustunardufla með 100 m bili, auk straumsjár. Humrarnir voru merktir í lok ágúst og duflin tekin upp í lok nóvember. Upplýsingar bárust frá öllum merkjum en tíu humrar af 16 voru metnir lifandi á hvorum stað. Fjallað verður um atferli og hegðunarmynstur humranna.