Líffræðifélag Íslands - biologia.is
Líffræðiráðstefnan 2021

Erindi/veggspjald / Talk/poster E3

Hve lengi lifir lúpínufræ í jarðvegi?

Höfundar / Authors: Þorvaldur Örn Árnason

Starfsvettvangur / Affiliations: Líffræðingur og kennari á eftirlaunum

Kynnir / Presenter: Þorvaldur Örn Árnason

Fyrst stuttur inngangur um alaskalúpínu og útbreiðslu hennar. Með notkun alaskalúpínu (Lupinus nootkatensis) til upprgæðslu er ekki stefnt að því að þekja landið heldur standi hún þar tímabundið og auðgi jarðveginn að lífrænu efni og köfnunarefni, búi þannig í haginn fyrir aðrar tegundir en hverfi svo sjálf. Þá þarf að vera hægt að hafa stjórn á útbreiðslu hennar og þekkja frævistfræði hennar, m.a. fræforða sem hún myndar í jarðvegi og hve langlífur hann er. Lúpínan er fjölær, myndar mikið fræ sem flest fellur nálægt móðurplöntu. Aðeins lítill hluti þess spírar á næsta vori. Hitt liggur í dvala í jarðvegi og spírar næstu ár og áratugi, enginn veit hve lengi það endist. Þannig myndar hún langlífan fræforða sem eykur gildi hennar sem uppgræðsluplöntu en gerir stjórnun á útbreiðslu hennar erfiða. Hér er lýst tilraun til að komast að því hve lengi fræ alaskalúpínu lifir í jarðvegi og í hve ríkum mæli. Valdar voru breiður í blóma þar sem lúpínan hefur sáð sér í fáein ár. Fræmyndun var stöðvuð upp frá því og taldar plöntur sem koma upp af fræi hvert ár eftir það. Elsti hluti tilraunarinnar hefur nú staðið í 9 ár en sá yngsti tvö sumur. Framkvæmd verður lýst í máli og myndum og gerð grein fyrir fyrstu niðurstöðum. ​ Rannsóknin er á vegum Sjálfboðaliðasamtaka um náttúruvernd og styrkt af Minningarsjóði Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson.