Uncategorized

Líffræðipeysur til 8. apríl

Í þessari viku ætla líffræðinemar að selja þessar ótrúlega fallegu líffræðihettupeysur með glænýju logoi sem Petrún hannaði Peysurnar eru í stærðunum S, M, L, XL og XXL. Þær kosta 3900kr án rennilás og 4900kr með rennilás. Þær eru 50% bómull og 50% polyester. Hægt verður að máta peysurnar í Öskju á eftirfarandi tímum: Mánudaginn 4. […]

Líffræðipeysur til 8. apríl Read More »

Flott rannsókn um erfðir álóttra hesta

Freyja Imsland stundar rannsóknir á literfðum hesta í Svíþjóð, með Leif Andersson og félögum. Nýjasta rannsókn hennar fjallar um erfðir álótta mynstursins, þar sem dökk rák liggur eftir baki hestins og faxið verður tvílitur kambur. Rúv fjallaði um rannsóknina í gær. Nýjar upplýsingar á sviði litlíffræði sýna hvernig hestar töpuðu felulitunum sem einkenndu þá í

Flott rannsókn um erfðir álóttra hesta Read More »

Sigríður Helga Þorbjarnardóttir – minningarorð

Við minnumst Sigríðar Helgu Þorbjarnardóttur með hlýju og þakklæti. Hún var dásamleg kona og fjölhæf með eindæmum, göngugarpur og ferðafrömuður, hafði náðargáfu fyrir sameindalíffræði, kennari af guðs náð og farsæll formaður Líffræðifélags Íslands. Margir voru þeirrar gæfu aðnjótandi að ganga með Siggu á vegum Ferðafélagsins eða í öðrum ferðum um nágrenni Reykjavíkur. Ferðir sameindahópsins t.d.

Sigríður Helga Þorbjarnardóttir – minningarorð Read More »

Styðjum náttúruminjasafnið – hluthafar í Perluvinum

Náttúruminjasafn Íslands hefur verið á hrakhólum eða teikniborði í áratugi. Nýtt framtak félagsmanna í HÍN og annara hollvina safnsins var að stofna hlutafélag sem stendur straum að stofnkostnaði við uppbyggingu og hönnun safnsins. Bréf þess efnis barst félagsmönnum í HÍN, og hvetjum við sem flesta til að leggja málinu lið. —————- Hvatning til félagsmanna í

Styðjum náttúruminjasafnið – hluthafar í Perluvinum Read More »

Öndunarfæri landsins og endurheimt votlendis

Hlynur Óskarsson, vistfræðingur, ræddi endurheimt votlendis á Morgunvaktinni á Rás 1 fyrsta desember 2015. Mýrarnar eru öndunarfæri landsins | RÚV Einnig var talað við Sigurkarl Stefánsson um endurheimt á votlendi á Snæfellsnesi. Fljótvirk og áhrifarík aðferð Af vef RÚV Endurheimt votlendis er fljótvirk og áhrifarík aðferð til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, eins og koltvísýrings

Öndunarfæri landsins og endurheimt votlendis Read More »

Stjörnur dýraríksins á ystu nöf

Nýlegar rannsóknir á spendýrum, fuglum og öðrum tegundum sýna að margar tegundir nálgast nú hættusvæðið eða eru í hættu á að deyja út. Teikn hafa verið á lofti í marga áratugi, en gróðureyðing, skógarhögg og eyðilegging búsvæða veldur því að enn syrtir í álinn. Rúv var með vandaða fréttaskýringu um þetta mál nýlega – fréttamaðurinn

Stjörnur dýraríksins á ystu nöf Read More »

Loftslagsganga sunnudaginn 29. nóvember

Loftslagsganga á sunnudaginn – ákall frá Hinu íslenska náttúrufræðifélagi. Þann 29. nóvember ætlar almenningur um heim allan að flykkjast út á götu og krefjast aðgerða í loftslagsmálum fyrir fund Sameinuðu þjóðanna í París í byrjun desember, en markmið fundarins er að þjóðir heimsins nái bindandi samkomulagi um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda. Við ætlum líka að

Loftslagsganga sunnudaginn 29. nóvember Read More »

Andlátsfregn

Sigríður H. Þorbjarnardóttir, sérfræðingur við Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands, lést 15. nóvember sl., 67 ára að aldri. Sigríður fæddist á Grenivík 13. maí 1948. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1969 og innritaðist í BS-nám í líffræði sem þá var nýhafið við Háskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist Sigríður 1973 og lauk síðan M.Sc.-prófi í

Andlátsfregn Read More »