Líffræðifélag Íslands
Líffræðiráðstefnan 2015

Erindi/veggspjald / Talk/poster K3

Rannsóknastöðin Rif á Raufarhöfn

Þorkell Lindberg Þórarinsson (1), Embla Eir Oddsdóttir (2), Starri Heiðmarsson (3), Hlynur Óskarsson (4,5), Níels Árni Lund (6)

1. Náttúrustofa Norðausturlands, 2. Háskólinn á Akureyri, 3. Náttúrufræðistofnun Íslands, 4. Landbúnaðarháskóli Íslands, 5. Háskóli Íslands, 6. Sveitarfélagið Norðurþing

Kynnir / Presenter: Þorkell Lindberg Þórarinsson

Tengiliður / Corresponding author: Þorkell Lindberg Þórarinsson (rif@nna.is)

Markmið rannsóknastöðvarinnar Rifs er að efla og auka náttúrurannsóknir á Melrakkasléttu, safna saman og miðla upplýsingum um náttúrufar á svæðinu og styðja nærsamfélagið. Sex íslenskar rannsóknastofnanir standa að stöðinni auk sveitarfélagsins Norðurþings. Rif er einnig aðili að INTERACT – öflugu samstarfi rannsóknastöðva á norðurslóðum. Ísland er aðili að Norðurskautsráðinu (Arctic Council), samstarfsvettvangs ríkja sem liggja að norðurslóðum. Loftslagsbreytingar og aukin umsvif manna kalla á frekara eftirlit, rannsóknir og vöktun á viðkvæmu lífríki norðurslóða og er rannsóknastöðin og aðstaðan sem hún býður upp á liður í slíkri eflingu. Norðurhluti Melrakkasléttu er skilgreindur sem arktískt svæði (Low Arctic) og hentar því afar vel fyrir slík umsvif. Vöktun er einnig grundvöllur þess að stjórnvöld geti brugðist við neikvæðum áhrifum með réttum hætti á réttum tíma. Rannsóknastöðin hefur alfarið til umráða jörðina Rif – nyrstu jörð á Ísland. Jörðin og náttúra hennar gefa óþrjótandi möguleika á hvers konar vöktun og rannsóknum á sviði náttúruvísinda norður við heimskautsbaug. Þar má nefna rannsóknir á gróðri, fuglum, lífi í vötnum frá hafi til heiða, ströndinni með öllum sínum líffræðilega margbreytileika og áhrifum hafs á landmótun. Rif býður einnig upp á húsnæðisaðstöðu fyri vísindamenn sem áhuga hafa á að nýta sér þá einstæðu möguleika sem Rifsjörð og Melrakkasléttan öll hefur upp á að bjóða.