Áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar 2. júní

Þriðjudaginn 2. júní kl. 9:00-10:30 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins

Áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar

Opinn fundur á vegum Náttúruverndarsamtaka Íslands, franska sendiráðsins, Evrópustofu og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

Á fundinum verður fjallað um áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfi sjávar, súrnun hafsins, breytta fiskigengd í hafinu og áhrifin á Ísland. Í hverju felst barátta alþjóðlegra náttúrverndarsamtaka og í hverju felast aðgerðir Evrópusambandsins í baráttunni? Auk þess verður rætt um helstu áherslumálin á COP 21 loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París.

Frummælendur:

Kelly Rigg – stofnandi og framkvæmdastjóri Varda Group, ráðgjafafyrirtækis á sviði umhverfisverndar.

Attilio Gambardella – sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á sviði loftslagsaðgerða.

Haukur Þór Hauksson – aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Philippe O´Quin – sendiherra Frakklands á Íslandi.

Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson – framkvæmdastjóri Landverndar.

Boðið verður upp á kaffiveitingar frá 8:30 – 9:00.

Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.