Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki 23. mars

Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki

Málþingið verður haldið kl. 13.oo – 17.oo, mánudaginn 23. mars í fundarsalnum Kötlu á 2. hæð á Hótel Sögu.

Tilgangur málþingsins er að miðla upplýsingum um bein og óbein áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað.

13.00 – 13.30

Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra

13.30 – 13.50

Almennt um efnamengun frá eldgosinu – Veðurstofan

13.50 – 14.10

Loftmengun – Umhverfisstofnun

14.10 – 14.30

Mengun yfirborðsvatns – Jarðvísindastofnun HÍ

14.30 – 14.50

Áhrif á lífríki í ám og vötnum – Veiðimálastofnun

14.50 – 15.10

Áhrif á villt dýr og vistkerfi – Náttúrufræðistofnun

15.10 – 15.30

Kaffi

15.30 – 15.50

Áhrif á gróður og fóður fyrir búfé – Landbúnaðarháskólinn

15.50 – 16.10

Áhrif á búfé – Keldur

16.10 – 16.30

Áhrif á skógrækt – Skógræktin

16.30 – 17.00

Almennar umræður

Málþingið er haldið á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Bændasamtaka Íslands, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Hljóðupptökur og glærur vegna ofangreindra erinda og umræðna verða aðgengilegar eftir málþingið á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, www.anr.is og vef Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra www.avd.is

Fundarstjóri: Halldór Runólfsson