Lífríki Íslands hlýtur bókmenntaverðlaunin 2014

Síðasta haust kom út bókin Lífríki Íslands eftir Snorra Baldursson vistfræðing. Þann 30. janúar var tilkynnt að bókin hlyti Íslensku bókmenntaverðlaun, í flokki fræðibókmennta.

Lífríki Íslands er einstakt verk. Í bókinn er safnað saman miklum fróðleik, bæði úr bókum og fræðigreinum um hin ýmsu lífkerfi landsins. Snorri nálgast efnið frá vistfræðilegu sjónarhorni og lýkur bókinni á einskonar stöðumati á lífkerfi landsins.

Lifríkið var kynnt á bókafundi Líffræðifélags Íslands, sem haldinn var 19. nóvember 2014.

Þar voru kynntar þrjár bækur um líffræðileg efni.
Ráðgáta lífsins eftir Guðmund Eggertsson,
Lífríki Íslands eftir Snorra Baldursson og
Surtsey í sjónmáli eftir Erling Ólafsson og Lovísu Ásbjörnsdóttur.

Lífríki Íslands

„Úthafseyjan Ísland kúrir norður við heimskautsbaug víðsfjarri öðrum löndum. Ekki eru nema rétt um 15.000 ár síðan hún var hulin þykkum ísaldarjökli langt í sjó fram. Lífríki á þurrlendi er væntanlega að öllu eða langmestu leyti aðkomið eftir að síðasta kuldaskeiði lauk. Ótal eldgosum og ellefuhundruð ára landnámi manna síðar er það hér enn, laskað en lífvænlegt. Plöntu- og dýrategundir eru að vísu fáar en stofnar margra þeirra stórir og útbreiddir. Hvergi við Norður-Atlantshaf eru stærri laxastofnar eða sjófuglabjörg og sumarlangt dvelja hér nokkrir af stærstu vaðfuglastofnum Evrópu.“
Úr formála Snorra Baldurssonar

Fjallað var um bókmenntaverðlaunin á vefnum vísir.is.

Líffræðifélag Íslands óskar Snorra til  hamingju með bókina og verðlaunin.