Fiskeldi, áhrif af sjókvíaeldi og lausnir Málstofa 2

Fiskeldi, áhrif af sjókvíaeldi og lausnir Málstofa 2

Á árinu verða haldnar málstofur um fiskeldi í kvíum í sjó og á landi, á vegum NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna, Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og Líffræðifélags Íslands. Fyrsta málstofan var haldin 17. janúar 2014 og önnur málstofan verður haldin 14. mars næstkomandi.

Mikil umræða á sér nú stað um arðsemi, kosti og galla laxeldis í sjó. Reynsla af fiskeldi í sjó hér við land og erlendis hefur verið misjöfn og full ástæða er til að fara vandlega yfir hina ýmsu þætti eldisins áður en teknar eru ákvarðanir um frekari framkvæmdir á því sviði. Nú er komið fram á Alþingi frumvarp til laga, þingskjal 609 – 319. mál um breytingu á lögum um fiskeldi. Því er nauðsynlegt að efna til umræðna um fjölmarga þætti sem varða fiskeldi, umhverfi, byggðir og vottun afurða áður en afdrifaríkar breytingar verða lögfestar.

Á næstu málstofu flytja erindi erlendir sérfræðingar sem hafa rannsakað áhrif sjókvíaeldis á nálæg vistkerfi og þekkja reynslu annarra þjóða af laxeldi. Þeir eru dr. Trygve Poppe prófessor við norska dýralæknaháskólann,dr. Paddy Gargan hjá Central Fisheries Board of Ireland, og dr. Bengt Finstad hjá norsku náttúrufræðastofnuninni NINA. Einnig flytja erindi þeir Jón Örn Pálsson MSc fyrir hönd  Landssambands fiskeldisstöðva og dr. Erik Sterud fyrir hönd Landssambands veiðifélaga.

Fjallað verður um sjávarlús í fiskeldi, lyfjagjafir, sjúkdóma og útbreiðslu smits frá fiskeldi í sjó, en allir frummælendur hafa tekið þátt í fjölda rannsókna á þessum sviðum. Að lokum verður opnað fyrir umræður og taka fyrirlesarar og fulltrúar Landssambands fiskeldisstöðva og Landssambands veiðifélaga þátt í pallborðinu.

Málstofan, sem fer fram á ensku, verður haldin á Café Sólon í Reykjavík kl. 13:30 – 16:30 föstudaginn 14. mars 2014.

Áhugafólk er beðið að skrá sig til þátttöku hjá nasf@vortex.is

Húsfyllir var á málstofunni í janúar og því er vissara að skrá sig hið fyrsta.