Fyrstu fréttabréf Líffræðifélagsins

Félaginu barst ómetanleg gjöf frá Guðmundi Eggertsyni.

Hann hafði safnað fréttabréfum félagsins frá stofnun til ársins 2004. Fyrstu árin var Agnar Ingólfsson heitinn formaður félagsins og ritstjóri fréttabréfsins. Starfið hófst af miklum krafti, t.d. komu út 9 hefti af fréttabréfinu árið 1980.

Stjórn félagsins er núna að koma fréttabréfunum á rafrænt form. Fyrstu þrjú fréttabréfin eru nú aðgengileg á vef félagsins, sem PDF myndaskrár.

Þær verða seinna aðgengilegar sem PDF textaskrár sem hægt er að afrita úr.

Fréttabréf Líffræðifélags Íslands. 1. árgangur 1. tölublað janúar 1980.

Fréttabréf Líffræðifélags Íslands. 1. árgangur 2. tölublað febrúar 1980.

Fréttabréf Líffræðifélags Íslands. 1. árgangur 3. tölublað mars 1980.