Kynning á námsefni fyrir líffræðikennslu 11. mars

Eftirfarandi tilkynning barst frá Samlíf, samtökum líffræðikennara.
 
Kynning verður á námsefni, í MH, 11. mars kl. 17:30.
 
Nokkrir höfundar munu kynna námsefni sem búið er að vinna og stendur til að gera.
 
Aðrir höfundar námsefnis sem hafa áhuga á að kynna efni sitt eru beðnir um að hafa samband við stjórn Samlífs.
 
Líffræðikennarar á öllum skólastigum eru hvattir til að mæta.