Ómar Ragnarsson opnaði líffræðiráðstefnuna

Líffræðiráðstefnan 2013 var haldin 8. og 9. nóvember síðastliðinn. Á ráðstefnunni voru kynntar margskonar rannsóknir á líffræði en umhverfismál voru einnig í sérstökum í brennidepli.

Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður og náttúruverndasinni, setti ráðstefnuna í með stuttu ávarpi og lestri á ljóðinu Aðeins ein jörð (Aðeins ein jörð)

Aðeins ein jörð.

Það er ekki´um fleiri´að ræða.

Takmörkuð er á alla lund

uppspretta lífsins gæða.

Einnig flutti Þóra Ellen Þórhallsdóttir yfirlitserindi sem kallaðist Afturábak eða nokkuð á leið: Staða náttúruverndar á Íslandi og Þorvarður Árnason erindið Er þörf á sérstöku ráðuneyti umhverfismála á Íslandi?

Leifur Hauksson tók viðtal við Þóru af þessu tilefni og var það flutt í útvarpsþættinum Sjónmál 13. nóvember 2013. Hægt er að hlýða á viðtalið á vef RÚV,  Náttúrufegurðin verður í askana látin.

Að síðustu má benda á ályktun stjórnar Líffræðifélags Íslands um meðferð stjórnvalda á umhverfismálum.

Mynd af Ómari Þorfinni Ragnarsyni var tekin við opnunina, af Arnari Pálssyni.